Allt gengur út á neonliti hjá krökkunum núna. Ég er ekki mikill aðdáandi sjálf – kláraði neonið þegar ég var 10 ára með neongult gel í hárinu og í neongrifflum og skræpóttum neonbol – en sá um daginn á facebooksíðu Prjónafjörs skemmtilega vettlinga fyrir krakka (og fullorðna) úr nýja neon-lopanum. Svo ég smellti í vettlinga fyrir Andreu og Örnu og er feykiánægð með útkomuna.
Uppskriftin að þessum röndóttu er fullorðinsuppskriftin (M/L) en mér finnst hún heldur stór. Andreu finnst æði að vera í svona stórum vettlingum en ég myndi þrengja þá næst um 4 lykkjur (gera 8-10 ára vettlingana). Þessir marglitu eru handa Örnu og prjónaðir í stærð 4-6 ára.
Þær ættu a.m.k. að sjást vel í umferðinni 🙂
Mynstur: Prjónafjör
Garn: Neon Álafosslopi frá Ístex
Prjónar: 4,5 og 5,5mm
join the conversation