LOKSINS er ég búin að taka saumaherbergið í gegn!!
Vá! Ég hélt þetta yrðu svona tveir til þrír dagar en NEI!!! ÞRJÁR VIKUR takk fyrir… ég er ekki viss um að ég hefði byrjað á þessu ef ég hefði vitað það fyrirfram hve mikil vinna lægi í þessu EN jesús Pétur hvað herbergið er orðið dásamlegt (aftur)!!
Það fóru fjórir svartir stórir ruslapokar út úr herberginu og ég get ekki með nokkru einasta móti skilið hvernig innihald þeirra komst fyrir (nema kannski á gólfinu í pokum, körfum, pökkum og pinklum, hóst hóst). Að auki fór sem nemur þremur svörtum pokum í viðbót í Góða hirðinn, Ljósið, skólann hjá Andreu og Davíð og í leikskólann hennar Örnu. Nú get ég andað léttar í herberginu því það er búið að þrífa hvern einasta krók og kima (ég þreif næstum því hverja nál!!) og ég er ekki frá því að sálin sé hreinni (það er svo sáluhreinsandi að losa sig við dót öðru hvoru) 🙂
Enn einn ávinningurinn við að hleypa tiltektar-hvirfilbyl inn til sín er að nú er ég orðin full af innblæstri og andagift og langar helst að dvelja í herberginu öllum stundum að sauma og sauma og sauma. Það eru fullt af verkefnum komin undir nálina og verður afraksturinn birtur hér í vikunni.
Þangað til, nokkrar myndir úr herberginu
Gleðilega páska!
Afgangakassarnir
Þessi bóka-/tímaritahilla leysti mikið pláss-vandamál. Fæst í Línunni.
Andrea fékk eina hillu líka undir efnin sín og saumakassann 🙂
Þennan fallega espresso bolla fékk ég að gjöf frá Íslenska bútasaumsfélaginu þegar ég hætti í stjórninni
Þessa skemmtilegu skó fékk ég frá eiginmanninum í jólagjöf um árið eftir að ég hafði séð þá á enskri 60’s blogsíðu — Þeir fara sko ekki í skóhilluna, hver segir að það megi ekki skreyta með skóm og efnum? 🙂
Þetta er alveg Dásemd !! Þvílík fegurð að sjá alla þessa liti 🙂
Herbergið er alveg yndislegt, en ég skil ekki “hvar allt þetta dót/rusl var í því”
Til hamingju með nýja saumaherbergið 🙂
kv. mamma