Mikið óskaplega getur maður nú verið heppinn stundum!!
Í gær barst í pósti tilkynning um böggul á pósthúsinu. Þegar ég kom heim með hann og opnaði hann kom í ljós fullt af gjöfum frá Önnu sem ég skrifaði um í júní. Og það ekkert smá gjafir. Við krakkarnir urðum himinlifandi þegar við byrjuðum að tína upp úr umslaginu.
Ég fékk 12 æðisleg… sko æðisleg efni. Þau eru svo “djúsí” að mig langar að smakka á þeim!! Og Anna sendi mér líka Dresden stiku – mig hefur alltaf langað í Dresden stiku og skil eiginlega ekki af hverju ég á ekki nú þegar svoleiðis!! – og tvo pakka af nýju frábæru Clover klemmunum. Þessar klemmur sá ég á netinu fyrir stuttu og hugsaði með mér að ég yrði að eignast þær til að nota þegar ég sauma niður bindingar. Og nú á ég 20 stykki sem munu heldur betur koma sér vel þegar ég sauma loks niður bindinguna á rúmteppinu mínu {sem “bæðevei” var tilbúið í október og ég á bara eftir að sauma bindinguna á það (m.a.s. búin að búa til bindinguna fyrir löngu)}.
Andrea fékk “skrapp” dót, washi teip og sætar bréfaklemmur sem hún notar sem bókamerki {hún er að lesa Twilight og er svo spennt að hún les á milli herbergja!}, Arna fékk Hello Kitty varasalva og límmiða og Davíð fékk LEGO minnisbók, blýanta og kubbastrokleður. Arna gengur nú um og bíður hverjum sem er að fá hjá sér varasalva og Davíð byrjaði strax að halda dagbók í gær 🙂
Í pakkanum var líka kort sem Anna hefur keypt af Chookyblue. Það er alveg magnað hvað internetið afmáir öll landamæri. Chookyblue og Quiltygal (Claire) frá Ástralíu hafa verið bloggvinkonur mínar síðan 2007 og þær eru líka vinkonur Önnu – skemmtileg tilviljun!
Ótrúlega fallega gert af Önnu, ég á eftir að hugsa til hennar þegar ég fer að skera niður og sauma úr efnunum 🙂