Vá hvað tíminn flýgur áfram á haustin!
Við létum skíra Dag Frey litla 15. september, skólinn og allar tómstundirnar (þær eru sko ekki fáar) að komast í rútínu og svo er alltaf eitthvað að gerast um helgar, alls kyns íþróttamót, bæði hjá fullorðna fólkinu og krökkunum, bústaðaferðir ofl.
Í síðustu færslu talaði ég um að setja inn mynd af Degi litla í nýju fötunum. Ég tók myndirnar sama dag en hef ekki bloggað neitt síðan.
Hér er hann í allt of stórum en dásamlegum fötum. Peysan er enn of stór en buxurnar sleppa. Ég þarf reyndar að setja teygju í mittisstroffið á buxunum því þær eru of víðar en annars er nóg að bretta upp á skálmarnar. Buxurnar eru mjúkar og hlýjar en ekki þannig að hann svitni í þeim. Peysan er hér með tvöföldu uppábroti en axlirnar leka niður handleggina, held ég bíði í 2-3 mánuði með að nota hana á hann. Eitthvað segir mér að þessi föt eigi eftir að stækka með honum 🙂